ÍSLAND ER EINS OG ....

Ísland er eins og hús í byggingu hjá lélegum húsasmið...

Tilbúið undir kraftaverk.

kv ein sem er hætt að skilja hvað er í gangi


Uuuuu ég er á lífi !!!

 

hæ allir´

Ég er komin aftur LoL

 

kveðjur og friður sé með yður og öllum hinum


jiminn hvað það er gaman að vera til...

Elskurnar mínar, ég skrapp bara norður í sumarfrí með fjölskylduna agalega gaman skal ég segja ykkur.

Ég var nú alveg til friðs og lét allar Police og flugelda eiga sig þá viku sem ég eyddi á Akureyri, sá ekki einu sinni einn skitinn ísbjörn hvað þá meira. 

En þar sem að ég ber virðingu fyrir laganna vörðum þá voru þeir öruggir fyrir aðkasti af minni hálfu og ég tala nú ekki um ísbjarnarkvikindið, ég hefði sennilega andast á staðnum ef ég hefði verið í návígi við hann.

Við skemmtum okkur konunglega en boj ó boj hvað það var gott að komast heim í kotið okkar.

 

só long....... 


óóóó mí god mamma...

" Kann maðurinn ekki á stjörnuljós ?"

Þetta var eitt af gullkornum sex ára dóttur minni þegar bíll tók fram úr okkur á leið til RVK í gær.

Auðvitað átti hún við stefnuljós.... InLove

 

Hún átti líka annað snilldar móment í gær, hún var að keppa í fótbolta og mikið að gerast á vellinum, svo sér hún pabba sinn á línunni og var hann að festa atburðinn á filmu.

Hún snarstöðvar leikinn og stillir sér upp í hinar ýmsu pósur og máttu allir hinkra á meðan hún var í myndatöku. (lík móður sinni )

 

fiður nei ég meina friður--- hvernig er verðið


Aftur til fortíðarskjálfta

 

Þegar skjálftinn reið yfir í gær, helltust yfir mig minningar síðan úr skjálftanum árið 2000.

Þá var ég búsett á Hvolsvelli og fór skemmdist okkar hús mikið og meirihluti innbús ónýtt eða skemmt.

En það er ekki það sem að skiptir mestu máli

Það sem að skiptir máli er að engin lét lífið, eða slasaðist alvarlega.

 

En samt sem áður er erfitt að missa stóran eða allann hluta af sínu innbúi, það veit ég af eigin reynslu.

 

Mínar bænir og samúð eru með öllum þeim sem eiga um sárt að binda eftir skjálftann.

 


Ég er hamingjusöm mamma mín.....

Þessi orð féllu upp í rúmi í gærkvöldi þegar við mæðgurnar áttum stund saman.

Tvær einar heima.. ein 13 ára skvísa og mamman

Ég hefði ekki fengið að heyra þessi orð ásamt því frábæra spjalli sem að við áttum saman, nema vegna þess að ég fékk svona hrottalega í bakið og samkvæmt læknisráði átti ég að vera heima og slappa af.

Þess vegna var tilvalið að eiga stund með ljósinu.

Hver segir að það sé slæmt að fá í bakið??

Það  bjargaði deginum hjá mérWink

 

Friiiiður 


Ég frussaði af hneykslan

 

Ég kom heim í gær eftir ágætis hjólatúr, og það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn var að heilsa fólkinu mínu.

Frumburðurinn var hvergi sjáanlegur, svo að ég fór inn í herbergið hans til að heilsa honum.

Ég andaðist pínu þegar ég lauk upp hurðinni, LITLI drengurinn var í faðmlögum og kisseríi með kærustunni sinni.

Það eina sem að ég gat sagt þegar ég var búin að ná andanum var :

" þú gætir nú sett sængurver utan um sængina þína drengur"  eins og það komi málinu eitthvað við

Svo lokaði ég hurðinni með 2 pör af augum horfandi á mig eins og ég væri E.T endurborin

það þarf ekki að taka það fram að tilvonandi tengdadóttir okkar heldur að ég sé meira en lítið biluð.

 

Ég á greinilega pínu erfitt með að trúa því að hann er 15 ára gamall, fyrir mér er hann ennþá litli ljóshærði strákurinn minn.Crying

 

Ég vældi um þetta í smástund við betri helminginn, " ég er orðin svo gömul og bla bla bla"

Svarið var " já elskan, þú ferð örugglega að verða amma "

u u u u  nei Pinch


ÞAÐ ER SVO SANNARLEGA ÁRIÐ 2008

1. Þú ferð í partý og byrjar taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega leist tilbaka til athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar. EF þú féllst fyrir þessu ... W00t
ÞESSU VAR STOLIÐ AF BLOGGINU HENNAR BEGGULOPEZ Devil 
Ætli ég komist til himna ?Halo

Ég held ekki!!!!!!

Í póstkassanum í gær var þessi líka ljóti plastpoki Devil

Skærgrænn með merki Hafnarfjarðar!! gerist ekki ósmartara

Þetta þýðir það að ég á að fara út með græna pokann og týna rusl, halda umhverfinu hreinu !!!

Það er ekkert að því að halda því hreinu og ég er alveg á því að það sé hið besta mál.

En að ég fari út að týna rusl í grænan plastpoka !!

Það vantar bara appelsínugula gallan og þá væri ég eins og Ameríkani í samfélagsþjónustu .

Ég held ekki


Segi ekki mikið

Ég er nú búin að jafna mig á dagaruglingnum ekki seinna vænna þar sem að hinn langþráði sumardagurinn fyrsti er á morgun, það fékk ég staðfest á dagatal.is

En það er ekki bara dagaruglingur sem að háir mér, ég hef ekki snefil af sens fyrir áttum ég villist ef ég er í 2 húsa sumarbústaðarhverfum.

Þessi hömlun gerði það að verkum að ég hét því að ég skyldi aldrei fara í Kópavog nema náttúrlega í fylgd einhvers sem að ratar eða mér yrði hreinlega rænt og flutt þangað nauðug

En ég er fljót að beygja prinsippin mín, mér bauðst vinna í Kópavogi og tók henni sæl og glöð en það skal tekið fram að eftir nokkra mánuði í starfi fer ég alltaf sömu leið í og úr vinnu ef ske kynni að ég myndi villast. 

Betri helmingnum mínum, þessi elska InLove finnst ekki margt jafnósmart og þessi áttavilla mín.

 

 


Næsta síða »

Höfundur

Gríman
Gríman

Ha ég ??

 

Nýjustu myndir

  • theorettir
  • theodoramedhjalm
  • bjössi
  • myndir sab
  • Theodóra réttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband